#1 - Nýr Raunveruleiki

1 Af 6. Sagan Sem Breytti Lífi Mínu. - Een podcast door Andri

Categorieën:

Þegar ég settist niður fyrir framan míkrafóninn þá hafði ég ákveðna hugmynd um hvað mig langaði að tala um en ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að byrja. Ég var alveg rosalega stressaður að byrja að tala um þetta allt og rifja upp söguna og segja frá henni. Ég hef aldrei farið jafn langt út fyrir þægindaramman eins og í þessum upptökum. Það tók á taugarnar að hugsa að einn daginn myndu allir sem vildu geta hlustað á þetta.