#8 Náttúrulega leiðin í gegnum breytingaskeiðið: "Hlustaðu á sjálfa þig!"

Að finna taktinn: Breytingaskeiðið - Een podcast door Podcaststöðin

Að þessu sinni fékk ég til mín þrjár konur sem hafa allar valið að fara í gegnum breytingaskeiðið án þess að taka inn hormóna. Þær hafa allar sínar ástæður fyrir að velja þessa leið og hafa fundið sinn takt með þessum hætti. Þær eiga það allar sameiginlegt að þær hafa allar stigið af af krafti inn í breytingaskeiðið. Jenny notar húmorinn, hugsar vel um heilsuna sína, hreyfir sig á hverju degi og hlustar á hvað líkaminn þarfnast. Hún er í það góðum tengslum við líkama sinn og hlustar vel eftir hvers hann þarfnast til að geta mætt sér. Ingunn hefur ekki enn séð ástæðu til að leita til læknis, en hún er líka að takast á við aðra heilsukvilla sem talið er að hormónauppbótameðferð sé ekki ákjósanleg fyrir. Hún notar hreyfingu og útivist til að mæta sér í dag og heldur svitakófunum niðri með Femarelle. Rakel er yogakennari og kennir meðal annars Hormónayoga, sem er ákveðið meðferðarform til að koma jafnvægi á hormónabúskap líkamans og endurvekja hann. Hún þýddi bók Dinuh Rodrigeus um Hormónayoga og hefur sjálf stundað það um árabil við góðan árangur. Ég vona að þið njótið þess að hlusta, tengja og stíga af krafti inn í breytingaskeiðið!