Frosti Sigurjónsson er á réttum stað
ALLTAF Í RÖNGUM BRANSA - Een podcast door Jon Axel Olafsson
Categorieën:
Frosti Sigurjónsson er í réttum bransa. Hann hefur verið virkur þátttakandi í viðskiptalífinu í fjölda ára og á að baki störf og verkefni sem marga dreymir um. Hann snerti líka á pólitík og fór á þing fyrir Framsóknarflokkinn eftir hrun. Hann barðist fyrir sjálfstæðinu með Advice hópnum þegar Ísland stefndi í Evrópusambandið og sigurinn var þeirra. Íslendingar höfnuðu inngöngu. Í þessu spjalli okkar Frosta segir hann okkur frá þeim verkefnum sem hann vinnur að í dag, hugsjónum sínum og áhugamálum. Hann er hamingjusamur og rólegur og á góðum stað í lífinu. Hann er alfarið á móti því að við seljum banka og telur að þjóðarsjóður sé mistök. Frosti Sigurjónsson ófeiminn við að segja sína skoðun á hlutunum.