Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar - Een podcast door Birtingur Utgafufelag

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Undarlegir endurfundir:„Þegar ég var unglingur gætti ég um tíma barna fyrir konu sem þótti skrautleg og skar sig úr í bænum þar sem við bjuggum. Löngu síðar lágu leiðir okkar saman aftur og þá hafði margt breyst.“ - Jólin með mínum fyrrverandi:„Á jólunum fyrir þremur árum var ég óhamingjusamari en ég hafði nokkru sinni verið áður. Ég vissi að hjónabandi mínu var lokið. Sambandið var einfaldlega búið, allt dautt á milli okkar. Mér hafði liðið illa lengi en ekki haft hugrekki til að taka skrefið. Jólin voru alltaf uppáhaldsárstíð hjá mér en alein inni á klósetti eftir miðnætti á gamlárskvöld tók ég ákvörðun um að skilja. Hið undarlega er að bestu jól ævi minnar eru nýliðin og ég varði þeim einmitt með þessum sama manni.“ - Mamma spillti sambandi okkar systra:„Við vorum bara tvær systurnar. Agnes þremur árum yngri en ég. Mamma hélt því fram að ég hefði verið afbrýðisöm út í systur mína alveg frá því að hún fæddist. Ég vil hins vegar ekki kannast við að hafa nokkru sinni fundið fyrir öfund í garð hennar en viðbrögð mömmu ýttu ævinlega undir samkeppni og reiði milli okkar.“- Guðsgjöf til mannkyns … :„Þegar langþráður sonur bættist við fjölskylduna fundum við systurnar fjórar vel fyrir því. Látlaust eftirlæti foreldra og annarra ættingja hafði án efa einnig mikil áhrif á bróður minn og ekki til góðs. Hann hefur alla tíð vitað allt betur en aðrir og kunnað að ná sínu fram með samblandi af sjarma og frekju.“- Vonda stjúpan – góða stjúpan:„Ófá ævintýri fjalla um vondar stjúpur sem láta einskis ófreistað til að gera stjúpbörnum sínum lífið leitt, jafnvel koma þeim fyrir kattarnef. Hans og Gréta, Mjallhvít og Öskubuska koma strax upp í hugann. Sjálf hef ég upplifað að eiga stjúpu, alls ekki af betri gerðinni, og undanfarin ár hef ég verið stjúpmóðir tveggja drengja.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.