Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar - Een podcast door Birtingur Utgafufelag

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:1) Sölumenn lífsins:„Ég veiktist óvænt um þrítugt og um tíma var ekki vitað hvort ég lifði veikindin af. Það kom mér á óvart hve margir töldu sig vita hvernig ég ætti að ná bata. Það olli mér líka furðu hversu margt undarlegt var í boði þarna úti sem ekki var hægt að kalla hefðbundnar lækningar.“2) Sænginni yfir minni:„Ég var afar næmt ungbarn og næmleikinn jókst með aldrinum. Ég horfði oft hlæjandi og hjalandi á eitthvað sem enginn annar sá og um tíma átti ég mér ósýnilegan leikfélaga.“3) Blind heift:„Elsku systir mín er yfirleitt hvers manns hugljúfi en í henni leynist þó mikil heift og einnig ótti um að reynt verði að misnota góðvild hennar. Hún verður bæði ósanngjörn og missir alla skynsemi þegar henni finnst á sér og sínum brotið og þá er ekkert til sem heitir fyrirgefning.“4) Aðskotahlutur á eigin heimili:„Fyrir löngu síðan passaði ég stundum litla stelpu sem bjó við sömu götu og ég. Aðstæður móður hennar breyttust nokkuð hratt til hins betra um svipað leyti og ég hætti að passa en nýlega heyrði ég hversu ömurleg ævi beið dóttur hennar.“ 5) Glansmyndin molnaði:„Ég var yfir mig hrifin af strák sem var með mér í skóla en hann vissi aldrei af því. Í mörg ár fylgdist ég með honum úr fjarlægð og lét mig dreyma. Löngu síðar kynntumst við og allar gömlu tilfinningarnar vöknuðu aftur.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.