Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar - Een podcast door Birtingur Utgafufelag
Categorieën:
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:- Tíu daga martröð:„Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“ - Yfirgangssamir vinir:„Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“- Óvænt vinslit:„Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“- Bíræfinn bóndi:„Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“- Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …:„Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.