Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar - Een podcast door Birtingur Utgafufelag
Categorieën:
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fornar ástir fyrnast ei: „Lífið kemur manni sífellt á óvart og það sannaðist sannarlega á foreldrum mínum þegar tilvera þeirra beggja snerist við en þá voru þau fyrir löngu skilin hvort við annað. “ - Óheillakrákan: „Mjög sorglegur atburður átti sér stað á unglingsárum mínum þegar ég passaði barn úti á landi eitt sumarið. Löngu seinna hitti ég konu, góða vinkonu á þessum tíma, en ég hafði þurrkað tilvist hennar algjörlega út úr minni mínu. “- Vinkona í gullbúri: „Besta vinkona mín var gift manni sem bannaði henni að tala við mig eftir að mér og honum lenti saman. Þegar við vinkonurnar hittumst loks aftur mörgum árum seinna, var það við sérstakar kringumstæður. “- Heppnust í heimi: „Þegar ég var fimmtán ára fékk ég vægast sagt erfiðar fréttir. Fólkið sem ég hafði þekkt alla ævisem mömmu og pabba sagði mér að þau hefðu ættleitt mig þegar ég var nýfædd. Ég varð bálreiðog ákvað að að finna „alvöruforeldra“ mína. “ Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.