Lífsreynslusögur Vikunnar
Lífsreynslusögur Vikunnar - Een podcast door Birtingur Utgafufelag
Categorieën:
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - „Þessi draumur er fyrir eldgosi“: Ég er alin upp á frekar litlum stað úti á landi. Pabbi var læknir þar og við bjuggum í læknisíbúð á sjúkrahúsinu. Í þessari frásögn er bæði aðstæðum og nöfnum breytt án þess að sagan sjálf breytist við það. - Mögnuð björgun: Fyrir fjölmörgum árum sagði þáverandi kærastinn minn frá undarlegu og óútskýranlegu atviki sem gerðist á því tímabili lífs hans þegar hann upplifði algjört svartnætti. - Besta ákvörðunin: Ég bjó í Reykjavík fyrstu 33 ár ævi minnar og giftist manni sem einnig er af höfuðborgarsvæðinu. Við hrunið breyttust aðstæður okkar mjög til hins verra og þegar okkur fannst allt komið í hnút tókum við ákvörðun sem við höfum ekki séð eftir. - Kolröng ákvörðun: Þegar ég hóf störf hjá litlu fyrirtæki fyrir mörgum árum leist mér vel á samstarfsfólk mitt og ekki liðu margir mánuðir þar til ég var orðin heiftarlega ástfangin. Sú ást varð mér til lítillar gæfu. - Furðuleg heimsókn: Bróðir minn er tvígiftur og missti seinni konu sína fyrir nokkrum árum. Daginn eftir jarðarförina fékk hann óvænta heimsókn frá manneskju sem gerði honum afskaplega undarlegt tilboð, svo vægt sé til orða tekið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.