Lífsreynslusögur Vikunnar

Lífsreynslusögur Vikunnar - Een podcast door Birtingur Utgafufelag

Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: -Illa svikin: Oft hef ég hrist höfuðið yfir vinkonum mínum og ástamálum þeirra og sagst ekki skilja hvernig konur geti látið fara svona illa með sig. Nýlega gekk ég hins vegar í gegnum lífsreynslu sem breytti þessu viðhorfi verulega og nú skil ég margt mun betur en áður. -Alein með ábyrgðina: Ég býst við að flestir vina minna telji að ég hafi átt góða æsku. Vissulega átti ég foreldra sem elskuðu mig og vildu mér allt hið besta. Sá hængur var hins vegar á að þau höfðu aldrei tíma fyrir okkur systkinin og frá níu ára aldri bar ég alein ábyrgðina á sjálfri mér og þeim. -Skilnaður er ekki endir alls: Fyrir tveimur árum stóð ég frammi fyrir þeirri ákvörðun að skilja við manninn minn eftir átján ára samband. Allt í einu var ég orðin einstæð tveggja barna móðir og fannst ég alein í heiminum. Ég var niðurbrotin, ringluð og vissi ekki hvert ég vildi stefna. Ég þráði heitast af öllu að hitta einhvern sem hefði eitthvað ögn skýrari markmið í lífinu en ég og gæti beint mér á rétta leið. Það varð til þess að ég tók fáránlega rangar ákvarðanir og endaði á að gera eitt það hræðilegasta sem móðir getur gert barni sínu. -Erfið heimkoma: Ég fór í ferðalag með syni mínum í sumar og þegar ég kom heim fannst mér maðurinn minn haga sér mjög einkennilega. Ég var nánast reið út í hann þangað til ég áttaði mig á því hvað var í gangi. -Margur verður af aurum api: Þegar móðurbróðir minn lést stóðum við ættingjar hans frammi fyrir skrítnu vandamáli. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.